Það var mikil stemming á uppistandssýninguna My Voices Have Tourettes þann 17. janúar síðastliðinn. Ef þú varst svo óheppinn að missa af þessari hópferð Tourette-samtakanna þarftu ekki að örvænta því við ætlum að að endurtaka leikinn og hafa aðra hópferð næstkomandi fimmtudagskvöld 31. janúar. Við mætum beint í Secret Cellar í Lækjargötu, sýningin hefst kl. 21:00 og það er gott að mæta tímanlega til að fá sæti.. Aðgangur er ókeypis en athugið að sýningin er á ensku. Secret Cellar er vínveitingastaður og því hentar þessi sýning ekki fyrir börn. Allar nánari upplýsingar er að finna í viðburðinum á Facebook https://www.facebook.com/events/628713164210891/