Aðalfundur 23. maí

Sigtún 42, Mannréttindahúsið
Sigtún 42, Mannréttindahúsið

Aðalfundur Tourette-samtakanna á Íslandi verður haldinn fimmtudaginn 23. maí klukkan 17:00 að Sigtúni 42 í Reykjavík, húsnæði ÖBÍ réttindasamtaka þar sem Tourette-samtökin eru með skrifstofu.

Dagskrá aðalfundar er:

  • Setning

  • Skýrsla stjórnar

  • Reikningar lagðir fram til samþykktar 

  • Félagsgjald komandi almanaksárs ákveðið

  • Kosning stjórnar

  • Kosning skoðunarmanns og annars til vara

  • Önnur mál

Í ár er kosið um tvö sæti í stjórn samtakanna, en formaður var sérstaklega kjörinn til tveggja ára á fundinum í fyrra. Hægt er að gefa kost á sér í stjórn á fundinum.

Engar tillögur að lagabreytingum hafa borist og því eru þær ekki sérstaklega á dagskrá enda þurfa þær að berast 3 vikum fyrir aðalfund.

Boðið verður upp á léttar veitingar.